Samhygð - samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Samhygð, samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri og nágrenni voru stofnuð í desember 1989 af hópi fólks sem hafði kynnst sambærilegum félagsskap í Reykjavík og fann að það var mikil þörf fyrir svona sjálfshjálparhópa á landsbyggðinni. Frá upphafi voru fundir haldnir hálfsmánaðarlega allt árið í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Á veturna var reynt að vera með fyrirlestur í hverjum mánuði um hin ýmsu efni. Nú starfar félagið einu sinni í mánuði frá september til maí og er áætlað að vera með fyrirlestra/erindi u.þ.b. 7 - 8 sinnum yfir starfsárið. Markmið samtakanna er að veita þeim stuðning sem koma að leita sér hjálpar eftir ýmis sorgaráföll er upp koma í lífinu, hvort heldur það er ástvinamissir, alvarleg veikindi, fötlun, atvinnumissir, skilnaður, gjaldþrot eða hvað annað. Það hjálpar heilmikið að geta talað við einhvern í trúnaði um sorgir sínar og áhyggjur og vita að sá hinn sami hefur upplifað sömu tilfinningar og efasemdir um framtíðina, en getur nú litið glaður fram á veginn.
Fundir Samhygðar eru í fundarsal Safnaðarheimilis Akureyrarkirkju, gengið inn hjá kapellunni. Opin hús/fundirnir byrja kl. 20.00 og eru auglýstir í Dagskránni og á N4, skjáauglýsing. |