Lögin eftir breytingar 2009.
Lög Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri og nágrenni. 1. gr. Samhygð, samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri og nágrenni, á heimili og varnarþing á Akureyri. 2. gr. Markmið samtakanna er að styðja syrgjendur og þá sem vinna að velferð þeirra. 3. gr. Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná með því að: a) efna til almennra fræðslufunda, b) veita þá upplýsingaþjónustu sem auðið er á hverjum tíma, c) vinna að stofnun stuðningshópa, d) greiða fyrir heimsóknum stuðningsaðila til syrgjenda, e) halda námskeið og þjálfa leiðbeinendur, f) efla almenna fræðslu um sorg og sorgarviðbrögð í fjölmiðlum og sem víðast á opinberum vettvangi. 4. gr Samtökin eru öllum opin. 5. gr. Tillögur um árgjöld ásamt fjárhagsáætlun næsta árs skal stjórn samtakanna leggja fyrir aðalfund. Reikningsár miðast við almanaksár. 6. gr. Aðalfund skal að jafnaði halda að vori, eigi síðar en í maí ár hvert og skal hann boðaður með a.m.k. 10 daga fyrirvara. Dagskrá aðalfundar skal vera: 1. Lögð fram skýrsla stjórnar samtakanna ásamt endurskoðuðum reikningum þeirra. 2. Lögð fram tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun næsta árs. 3. Lagabreytingar. 4. Lagðar fram tillögur er borist hafa og kosnar starfsnefndir. 5. Umræður um álit nefnda og afgreiðsla mála. 6. Kosning formanns, annarra stjórnarmanna og endurskoðenda. 7. Önnur mál. 7. gr. Stjórn skal kosin á aðalfundi. Hún skal skipuð fjórum mönnum og einum til vara. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs. Hann má endurkjósa tvisvar sinnum. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir í einu lagi til tveggja ára, þó þannig að á stofnfundi skulu þrír þeirra kosnir til eins árs. Sama gildir um varamenn. Stjórnin skiptir a.ö.l. með sér verkum. 8. gr. Lögum þessum má breyta á aðalfundi. Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn fyrir 15. mars og skal stjórnin senda þær með fundarboði. Til laga breytinga þarf 2/3 athvæða. Kosningarétt og kjörgengi hafa allir skráðir félagar. |