Stuðningshópar, eða sorgarhópar, eru lokaðir hópar þar sem fólk getur rætt reynslu sína í algjörum trúnaði við fólk sem upplifað hefur áþekkan missi.
Hópurinn hittist í 6 skipti yfir ákveðið tímabil og í hvert skipti er unnið með ákveðið þema. Sorgarhópar eru ekki meðferðartæki heldur eru þeir tæki til að veita sálfélagslegan stuðning og samkennd. Það hefur verið reynsla margra að hópastarfið hjálpi við sorgarúrvinnslu og geri skrefin áfram léttbærari. Marmið Samhygðar er að á Akureyri sé boðið upp á tvo sorgarhópa að hausti sem byrja að jafnaði í október, og tvo sorgarhópa að vetri sem byrja að jafnaði í febrúar. |
Sorgarhópar vorið 2019Makamissir - hópastarfi lokið
Almennur hópur - hópastarfi lokið |